© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.5.2008 | 10:31 | einar
Körfuboltabúðir Stjörnunnar og SUPERHOOPS
Körfuboltabúðir Stjörnunnar
Þann 4.-8 . júní n.k. verða SUPERHOOPS körfuboltabúðirnar haldnar öðru sinni í Ásgarði, Garðabæ.

Búðirnar eru samstarfsverkefni barna og unglingaráðs Kkd Stjörnunnar og SUPERHOOPS búðanna frá Kanada og eru fyrir stráka og stelpur sem fædd eru á bilinu ´90-´98. Gjaldið er 6.500 kr og veittur er 1.500 kr systkinaafsláttur.
Farið er í gegnum alla leyndardóma körfuboltans í vörn og sókn undir leiðsögn færustu þjálfara. SUPERHOOPS búðirnar hafa verið starfræktar í Kanada í nokkur ár og er stjórnandi þeirra vestur-íslendingurinn Ryan Leier og með honum koma 3 atvinnuþjálfarar frá Kanada. Búðirnar eru aldursskiptar sem auðveldar að sníða æfingarnar að þörfum hvers aldurshóps. Lögð er áhersla á að ekki séu fleiri en 40 krakkar í hverjum hóp til að allir fái nægilega leiðsögn og athygli.

Nú þegar hefur þurft að loka fyrir skráningu í tvo yngri hópana og komust færri að en vildu en ennþá eru nokkur pláss laus í elsta hópnum.

Áhugasamir geta skráð sig og fengið nánari upplýsingar á karfa@stjarnan.is eða í síma 845 7538. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla sem hafa metnað til að bæta sig í öllum þáttum körfuboltans undir leiðsögn atvinnumanna í faginu.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Kvennalandsliðið fleygir þjálfara sínum, Torfa Magnússyni, í sundlaugina.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið