S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
3.5.2008 | 10:08 | SÖA
Leikir dagsins á NM
Nú er að duga eða drepast fyrir Rögnu Margréti og hinar stelpurnar í U18
Kvennaliðin ríða á vaðið, en þau eiga bæði leik kl. 11 að íslenskum tíma. 18 ára stúlkurnar mæta þá Finnum og þurfa að vinna með 11 stigum til að komast í leikinn um þriðja sætið. Sá leikur skiptir því gríðarlega miklu fyrir íslenska stúlknaliðið, en takist stúlkunum ætlunarverk sitt er ljóst að öll fjögur liðin leika um verðlaunasæti. 16 ára stelpurnar leika á sama tíma gegn Dönum, en sá leikur ræður því hvort liðið endar í þriðja og fjórða sæti riðilsins, hann breytir því þó ekki að stelpurnar leika um þriðja sætið á morgun. 18 ára lið drengja leikur gegn Norðmönnum kl. 13. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið, því Norðmenn tryggja sér efsta sæti riðilsins og sæti í úrslitaleiknum með sigri. Íslensku strákarnir geta hins vegar komist í úrslitaleikinn með 10 stiga sigri á Norðmönnum, það er því mikið í húfi. 16 ára lið drengja leikur gegn Finnum kl. 17. Leikurinn skiptir engu máli fyrir báðar þjóðir, þar sem ljóst er að Íslendingar leika til úrslita og Finnar eru sem stendur að leika gegn Norðmönnum um hvor þjóðin leikur um þriðja sætið, það má því búast við því að mínútur íslenska liðsins verði dreifðari en hingað til á mótinu. Karfan.is er með sína útsendara á mótinu og hafa staðið stórkostlega að umfjöllun um Norðurlandamótið. |