© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.5.2008 | 22:17 | oddur
CSKA og Maccabi Tel Aviv mætast í úrslitum Evrópudeildarinnar
Liðsmenn CSKA fagna sigrinum á Tau Ceramica.
Undanúrslit Evrópudeildarinnar í körfuknattleik fóru fram í dag. Stórveldin CSKA Moskva og Maccabi Tel Aviv tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum á sunnudaginn.

Ísraelsku meistararnir, Maccabi Tel Aviv sigruðu Montepaschi Siena sem eru ítalskir meistarar 85-92. Maccabi áttu magnaða endurkomu í leiknum en þeir náðu að sigra þrátt fyrir að hafa lent 18 stigum undir í 2. leikhluta.

Meistarar síðasta árs, CSKA Moskva, sigruðu spænska liðið Tau Ceramica 79-83 og munu þeir þar með leika í úrslitaleiknum þriðja árið í röð. Rússneska stórveldið á þar með möguleika á að vinna sinn sjötta Evrópudeildartitil.

Úrslitaleikurinn verður í Madrid á Spáni á sunnudag og það er ljóst að það verður sannkallaður risaslagur þegar þessi tvö stórlið mætast. Úrslitahelgin í Evrópudeildinni er einn af stærstu körfuboltaviðburðum hvers árs en fólk streymir að úr öllum áttum til að fylgjast með úrslitunum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bragi Magnússon leikmaður Skallagríms er hér í sókn gegn Rodney Dobart, leikmanni Grindvíkur. Dobart leysti af Herman Meyers í janúar þetta ár sem varð fyrir meiðslum og lék með Grindavík til sigurs það árið.

Myndin er tekin í 8-liða úrslitunum þann 10. mars 1996 en leikurinn fór 62-76 og þar með vann Grindavík 2-0.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið