© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.5.2008 | 11:27 | SÖA
U16ka: Öruggur sigur
Haukur lék mjög vel (mynd: Snorri Örn)
16 ára landslið drengja vann í morgun mjög öruggan sigur á Norðmönnum, 104-80, þar sem strákarnir léku sem ein heild og hreinlega völtuðu yfir Norsku piltana á löngum köflum.

Leikurinn var jafn framan af og leiddu íslensku strákarnir með 1 stigi, 13-12 þegar um 3 mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. Þá small vörnin og strákarnir náðu 6 stiga forystu við lok leikhlutans, 19-13.

Það var svo í öðrum leikhluta þar sem leiðir fóru að skilja. Íslensku strákarnir pressuðu mjög stíft og fengu margar auðveldar körfur út úr því, en Norðmenn áttu í stökustu vandræðum með að koma boltanum á samherja á sóknarvelli. Strákarnir náðu góðri forystu, 38-19, en létu ekki þar við sitja og leiddu með 32 stigum í hálfleik, 64-32.

Seinni hálfleikur varð aldrei spennandi, íslensku strákarnir léku af öryggi og gáfu þeim norsku aldrei færi á að komast inn í leikinn. Staðan að loknum þriðja leikhluta var 88-51 og aðeins formsatriði að klára leikinn. Lokatölur, eins og áður segir, 104-80, en Norðmenn skoruðu margar auðveldar körfur undir lok leiksins þegar úrslitin voru orðin ljós.

Íslenska liðið lék hreint frábærlega í leiknum, en helsti styrkur þess var liðsheildin. Allir leikmenn liðsins lögðu sitt af mörkum og það skilaði sér í góðum og öruggum sigri á Norðmönnum.

Haukur Helgi Pálsson lék frábærlega fyrir íslenska liðið, skoraði 30 stig, tók 10 fráköst, stal 7 boltum og átti 3 stoðsendingar á 24 mínútum. Skotnýting Hauks var til fyrirmyndar, 8 af 10 tveggja stiga skotum rötuðu rétta leið sem og 2 af 3 þriggja stiga skotum. Björn Kristjánsson skoraði 20 stig (3 stolnir), Hjalti Valur Þorsteinsson skoraði 18 stig (7/7 í tveggja, 2 stolnir), Elvar Sigurðsson skoraði 12 stig (3 stolnir, 4 stoðsendingar), Ólafur Helgi Jónsson 8, Oddur Ólafsson 5 stig (4 stolnir, 3 stoðsendingar), Óli Ragnar Alexanderson 4
(4 stolnir, 3 stoðsendingar), Anton Örn Sandholt 3, Andri Þór Skúlason 2, Styrmir Gauti Fjeldsted 2 (3 fráköst, 3 stolnir, 3 stoðsendingar).
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið