© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.4.2008 | 15:00 | OOJ
16 ára strákarnir hvíla í kvöld en spila tvo leiki á morgun
Haukur Helgi Pálsson er fyrirliði 16 ára liðs karla. Myndir: Snorri Örn
Norðurlandamót unglinga hefst í Solna í Svíþjóð í dag og er þetta sjötta árið í röð sem mótið fer fram á þessum stað og með þessu fyrirkomulagi. Heimasíðan kynnir unglingalandsliðin sem eru á leiðinni til Solna og nú er komið að 16 ára landsliði karla sem spilar sína fyrstu leiki ekki fyrr en á morgun þegar liðið spilar tvo leiki.

Leikmenn liðsins koma frá sex félögum. Njarðvík og Fjölnir eiga flesta leikmenn í liðinu eða alls þrjá hvort félag en Breiðablik og Hamar eiga tvo leikmenn hvort. Keflavík og Haukar eiga síðan einn leikmann hvort félag. Tveir leikmenn í liðinu eru einu ári yngri og því að spila upp fyrir sig en það eru þeir Andri Þór Skúlason úr Keflavík og Anton Örn Sandholt úr Breiðabliki.

Sextán ára landslið karla hefur náð í verðlaun á síðustu fjórum Norðurlandamótum en liðið var Norðurlandameistari í annað skipti í fyrra eftir að hafa gullið einnig árið 2004. 16 ára strákarnir unnu síðan silfur árið 2005 og brons fyrir tveimur árum. Fjölnismaðurinn Haukur Helgi Pálsson er eini leikmaður liðsins sem á landsleik að baki en hann var með 16 ára liðinu sem varð Norðurlandameistari í fyrra. Haukur Helgi á að baki 5 leiki og hefur skorað 38 stig í þeim.

16 ára lið karla á NM 2008

Leikir liðsins: (Íslenskur tími)
Fimmtudagur 1. maí 8:30 Ísland-Noregur
Fimmtudagur 1. maí 16:30 Ísland-Danmörk
Föstudagur 2. maí 13:00 Ísland-Svíþjóð
Laugardagur 3. maí 17:00 Ísland-Finnland
Á sunnudeginum, 4. maí, er síðan leikið um sæti


Bakverðir:



Andri Freysson
Númer á treyju: 4
Félag: Haukar
Fæðingarár: 1992
Hæð: 186 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Óli Ragnar Alexandersson
Númer á treyju: 5
Félag: Njarðvík
Fæðingarár: 1992
Hæð: 177 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Elvar Sigurðsson
Númer á treyju: 6
Félag: Fjölnir
Fæðingarár: 1992
Hæð: 179 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Hjalti Valur Þorsteinsson
Númer á treyju: 7
Félag: Hamar
Fæðingarár: 1992
Hæð: 183 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Björn Kristjánsson
Númer á treyju: 8
Félag: Breiðablik
Fæðingarár: 1992
Hæð: 184 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Oddur Ólafsson
Númer á treyju: 10
Félag: Hamar
Fæðingarár: 1992
Hæð: 182 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Framherjar:



Ólafur Helgi Jónsson
Númer á treyju: 9
Félag: Njarðvík
Fæðingarár: 1992
Hæð: 187 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Daníel Geirsson
Númer á treyju: 11
Félag: Fjölnir
Fæðingarár: 1992
Hæð: 190 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Haukur Helgi Pálsson
Fyrirliði liðsins
Númer á treyju: 13
Félag: Fjölnir
Fæðingarár: 1992
Hæð: 198 sm
Landsleikir/stig: 5 leikir, 38 stig
Reynsla af NM: Annað skipti
2007 5 leikir, 38 stig með 16 ára liðinu



Styrmir Gauti Fjeldsted
Varafyrirliði liðsins
Númer á treyju: 14
Félag: Njarðvík
Fæðingarár: 1992
Hæð: 193 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Anton Örn Sandholt
Númer á treyju: 15
Félag: Breiðablik
Fæðingarár: 1993
Hæð: 191 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Miðherjar:



Andri Þór Skúlason
Númer á treyju: 12
Félag: Keflavík
Fæðingarár: 1993
Hæð: 198 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Þjálfari:



Þjálfari liðsins er Einar Árni Jóhannsson þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki en hann er að fara Norðurlandamótið í fjórða sinn þar af í annað skiptið með 16 ára liðið.

Einar Árni Jóhannsson á NM
2004 18 ára landslið karla (1985) 1. sæti 4-1, 80%
2005 16 ára landslið karla (1989) 2. sæti 4-1, 80%
2007 18 ára landslið karla (1989) 5. sæti
1-3, 25%
2008 16 ára landslið karla (1992) ?. sæti
14 leikir - 9 sigrar, 5 töp - 64% sigurhlutfall
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg árið 1995.  Falur Harðarson og Ísak Leifsson nuddari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið