© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.4.2008 | 11:00 | OOJ
18 ára stelpurnar mæta Danmörku í fyrsta leik í kvöld
Íris Sverrisdóttir er fyrirliði 18 ára liðs kvenna. Myndir: Snorri Örn
Norðurlandamót unglinga hefst í Solna í Svíþjóð á morgun og er þetta sjötta árið í röð sem mótið fer fram á þessum stað og með þessu fyrirkomulagi. Heimasíðan kynnir unglingalandsliðin sem eru á leiðinni til Solna og nú er komið að 18 ára landsliði kvenna sem spilar sinn fyrsta leik á móti Dönum strax sama kvöld og liðið lendir í Svíþjóð.

Leikmenn liðsins koma frá sex félögum. Haukar eiga flesta leikmenn í liðinu eða alls fimm, Grindavík á tvo leikmenn og KR, Snæfell, Hamar og Keflavík eiga öll einn leikmenn hvert.

Tveir leikmenn liðsins eru að spila upp fyrir sig en það eru Lóa Dís Másdóttir úr Keflavík og Heiðrún Hödd Jónsdóttir úr Haukum.Þær eru tvær af fimm leikmönnum sem voru ekki með fyrir tveimur árum þegar þessir árgangar spiluðu saman sem 16 ára lið. Þær Bryndís Hanna Hreinsdóttir úr Haukum, Dóra Björk Þrándardóttir úr KR og Íris Sverrisdóttir úr Grindavík voru ekki heldur með. Íris gat ekki spilað á mótinu fyrir tveimur árum þar sem að hún var að vinna sig út úr krossbandasliti fyrr um veturinn.

Átján ára landslið kvenna náði sínum besta árangri 2005 og 2006 en í bæði skiptin komst liðið í úrslitaleikinn en varð að sætta sig við silfur. Liðið spilaði um 3.sætið á mótinu í fyrra og tapaði þá í hörkuleik á móti Dönum í lokaleiknum. Sex leikmenn liðsins í ár voru með liðinu í fyrra en það eru þær Íris Sverrisdóttir, Lilja Ósk Sigmarsdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir úr Grindavík, Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Kristín Fjóla Reynisdóttir úr Haukum og Hafrún Hálfdánardóttir úr Hamri.

Ingibjörg Jakobsdóttir úr Grindavík er leikjahæsti leikmaður liðsins og sá eini sem hefur spilað A-landsleik en Ingibjörg hefur spilað 30 leiki fyrir öll landslið og skorað í þeim 131 stig. Þær Hafrún Hálfdánardóttir úr Hamri og Ragna Margrét Brynjarsdóttir úr Haukum hafa spilað jafnmarga unglingalandsliðsleiki og Ingibjörg eða 29 hver. Hafrún er sá leikmaður liðsins sem hefur skorað flest stig fyrir landsliðin eða alls 179 eða fimm fleiri en Ragna Margrét.

18 ára lið kvenna

Leikir liðsins: (Íslenskur tími)
Miðvikudagur 30. apríl 19:00 Ísland-Danmörk
Fimmtudagur 1. maí 12:30 Ísland-Svíþjóð
Föstudagur 2. maí 7:00 Ísland-Noregur
Laugardagur 3. maí 11:00 Ísland-Finnland
Á sunnudeginum, 4. maí, er síðan leikið um sæti

Bakverðir:



Heiðrún Hödd Jónsdóttir
Númer á treyju: 6
Félag: Haukar
Fæðingarár: 1991
Hæð: 172 sm
Landsleikir/stig: 5 leikir, 13 stig
Reynsla af NM: Annað skipti
2007 5 leikir, 13 stig



Ingibjörg Jakobsdóttir
Númer á treyju: 7
Félag: Grindavík
Fæðingarár: 1990
Hæð: 174 sm
Landsleikir/stig: 30 leikir, 131 stig (þar af 1 leikur og 0 stig fyrir A-liðið)
Reynsla af NM: Fjórða skiptið (14 leikir, 69 stig)
2007 5 leikir, 46 stig fyrir 18 ára liðið
2006 4 leikir, 14 stig fyrir 16 ára liðið
2005 5 leikir, 9 stig fyrir 16 ára liðið



Íris Sverrisdóttir
Fyrirliði liðsins
Númer á treyju: 8
Félag: Grindavík
Fæðingarár: 1990
Hæð: 176 sm
Landsleikir/stig: 18 leikir, 137 stig
Reynsla af NM: Þriðja skipti (10 leikir, 72 stig)
2007 5 leikir, 37 stig fyrir 18 ára liðið
2005 5 leikir, 35 stig fyrir 16 ára liðið



Bryndís Hanna Hreinsdóttir
Númer á treyju: 10
Félag: Haukar
Fæðingarár: 1990
Hæð: 160 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Gunnhildur Gunnarsdóttir
Númer á treyju: 12
Félag: Snæfell
Fæðingarár: 1990
Hæð: 170 sm
Landsleikir/stig: 11 leikir, 53 stig
Reynsla af NM: Annað skipti
2006 4 leikir, 6 stig



Kristín Fjóla Reynisdóttir
Varafyrirliði liðsins
Númer á treyju: 13
Félag: Haukar
Fæðingarár: 1990
Hæð: 175 sm
Landsleikir/stig: 24 leikir, 26 stig
Reynsla af NM: Þriðja skipti (9 leikir, 10 stig)
2007 5 leikir, 6 stig fyrir 18 ára liðið
2006 4 leikir, 4 stig fyrir 16 ára liðið


Framherjar:



Lilja Ósk Sigmarsdóttir
Númer á treyju: 5
Félag: Grindavík
Fæðingarár: 1990
Hæð: 176 sm
Landsleikir/stig: 16 leikir, 116 stig
Reynsla af NM: Þriðja skipti (9 leikir, 37 stig)
2007 5 leikir, 13 stig fyrir 18 ára liðið
2006 4 leikir, 24 stig fyrir 16 ára liðið



Helena Brynja Hólm
Númer á treyju: 9
Félag: Haukar
Fæðingarár: 1990
Hæð: 172 sm
Landsleikir/stig: 11 leikir, 16 stig
Reynsla af NM: Annað skiptið
2006 4 leikir, 4 stig



Hafrún Hálfdánardóttir
Númer á treyju: 11
Félag: Hamar
Fæðingarár: 1990
Hæð: 184 sm
Landsleikir/stig: 29 leikir, 179 stig
Reynsla af NM: Fjórða skiptið (14 leikir, 55 stig)
2007 5 leikir, 10 stig fyrir 18 ára liðið
2006 4 leikir, 26 stig fyrir 16 ára liðið
2005 5 leikir, 19 stig fyrir 16 ára liðið



Lóa Dís Másdóttir
Númer á treyju: 14
Félag: Keflavík
Fæðingarár: 1991
Hæð: 178 sm
Landsleikir/stig: 12 leikir, 33 stig
Reynsla af NM: Annað skipti
2007 5 leikir, 27 stig fyrir 16 ára liðið


Miðherjar:



Dóra Björk Þrándardóttir
Númer á treyju: 4
Félag: KR
Fæðingarár: 1990
Hæð: 186 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti



Ragna Margrét Brynjarsdóttir
Númer á treyju: 15
Félag: Haukar
Fæðingarár: 1990
Hæð: 188 sm
Landsleikir/stig: 29 leikir, 174 stig
Reynsla af NM: Fjórða skiptið (14 leikir, 83 stig)
2007 5 leikir, 29 stig fyrir 18 ára liðið
2006 4 leikir, 27 stig fyrir 16 ára liðið
2005 5 leikir, 27 stig fyrir 16 ára liðið


Þjálfari:



Þjálfari liðsins er Ágúst Björgvinsson þjálfari meistaraflokks karla hjá Hamri og A-landsliðsþjálfari kvenna. Þetta er í fjórða sinn sem Ágúst fer með landslið á Norðurlandamótið og í öll skiptin hefur hann þjálfað 18 ára lið kvenna.

Ágúst Björgvinsson á NM
2003 18 ára landslið kvenna (1984) 4. sæti 0-4, 0%
2005 18 ára landslið kvenna (1987) 2. sæti 3-2, 60%
2007 18 ára landslið kvenna (1989) 4. sæti 1-4, 20%
2008 18 ára landslið kvenna (1990) ?. sæti
14 leikir - 4 sigrar, 10 töp - 29% sigurhlutfall
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ingi Þór Steinþórsson sá um að stýra Mix mótinu sem haldið var á Miklatúni sunnudaginn 1. júlí 2007 og gerði það af alkunnri snilld.  Mótið var haldið í brakandi blíðu, allt fram að 8 liða úrslitum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið