© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.4.2008 | 15:34 | oddur
Kef City TV
Eins og körfuboltaáhugamenn hafa kannski tekið eftir þá hafa nýjir þættir um körfubolta birst á netinu í tengslum við úrslitakeppnir Iceland Express deildanna. Þættirnir heita Kef City TV og fjalla um körfuboltaleiki Keflavíkur.

Það eru þeir Sigurður F. Gunnarsson og Þorsteinn Lár Ragnarsson sem standa að þessum þáttum og hafa þeir gert þætti um alla leiki karlaliðs Keflavíkur í úrslitakeppninni. Einnig gerðu þeir góðan þátt um þriðja leik Keflavíkur og KR í úrslitum Iceland Express deildar kvenna.

Í þáttunum sína þeir félagar meðal annars skemmtileg brot úr leikjum og taka viðtöl við leikmenn og þjálfara liðanna.

Þetta er frábært framtak hjá þeim Sigurði og Þorsteini og það er víst að körfuboltaaðdáendur kunna vel að meta þættina.

Þættina má finna hér..
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einar Bollason tekur viðtal við Charles Barkley á stjörnuleik NBA í Phoenix í Bandaríkjunum í febrúar 1995.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið