© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.4.2008 | 10:32 | oddur
Körfuboltaskóli Þórs
Körfuboltaskóli Þórs verður haldinn helgina 5.-6. apríl í Síðuskóla. Skólinn er ætlaður öllum krökkum á aldrinum 9 til 15 ára (4.-10. bekk), sem hafa áhuga á að prófa skemmtilega íþrótt.

Farið verður í fjölbreytilega leiki, skotkeppnir og ýmsar grunnæfingar, auk þess sem skipt verður í lið og spilað. Allir þátttakendur fá minningargrip að skólanum loknum. Verðlaun verða veitt þeim sem sigra skotkeppnirnar sem m.a. felast í því að hitta af löngu færi, en einnig verður keppt í Stinger, Hot-shot og vítaskotum.

Skólinn fer fram á eftirfarandi tímum:

Laugardagur 5. apríl

Kl. 11.00 – 15.00

Sunnudagur 6. apríl

Kl. 12.30 – 17.00


Mjög mikilvægt er að allir komi með nesti með sér báða dagana, s.s. ávexti, smurt brauð og ávaxtasafa.

Að skólanum loknum er öllum frjálst að mæta á æfingar til prufu ókeypis í eina viku ef vilji er fyrir hendi og hvetjum við alla til þess. Tekið skal fram að það er ekki skilyrði að hafa mætt í skólann til þess að fá að prófa. Æfingatöfluna má nálgast á heimasíðu Þórs á Akureyri (www.thorsport.is).

Aðgangur að skólanum er ókeypis.

Nánari upplýsingar veitir Baldur I. Jónasson, s. 895-7160 eða baldur@snerpa.is.

Nánar á heimasíðu Þórs.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Logi Gunnarsson sigraði í troðslukeppninni 2001 í tengslum við stjörnuleik KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið