© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
31.5.2001 | 8:49 | bl
EM landsliða - Aftur í fyrra horf
Þær breytingar voru gerðar á undanúrslitakeppni Evrópumóts landsliða, á þingi FIBA í Bad Kreuznach í Þýskalandi um síðustu helgi, að fyrirkomulagi Evrópumóts landsliða var aftur breytt í það horf sem keppnin var fyrir úrslitakeppnina 1999.

Þetta þýðir að riðlarnir verða 5 talsins, sex lið í hverjum riðli og þjóðirnar sem taka þátt í undanúrslitariðlinum verða því aftur 30 talsins. Í undanúrslitakeppninni sem lauk sl. vetur voru riðlarnir aðeins 4. Þá komust þjóðirnar sem urðu í sætum 2-7 í úrslitakeppninni þar á undan beint í næstu úrslitakeppni og þurftu því ekki að taka þátt í undanúrslitakeppninni.

Í ljós kom að þessar þjóðir skorti verkefni fyrir landliðin sín og þær vildu því aftur fá að keppa í undanúrslitariðlunum í stað þess að sitja hjá án alvöru landsleikja.

Eftir úrslitakeppnina í Tyrklandi í september nk. munu því aðeins nýkrýndir Evrópumeistarar og gestgjafarnir Svíar fara beint í úrslitakeppnina sem haldin verður í Svíþjóð 2003. Þar verður leikið í riðlum í Boras, Lulea, Norrköpping og Södertälje. Úrslitakepppnin verður síðan í Stokkhólmi.

Þetta eru í raun góðar fréttir fyrir okkur Íslendinga því þetta þýðir að verði landsliðið okkar í undanúrslitakeppninni ásamt öllum stóru þjóðunum nema EM-meisturunum, er góður möguleiki á að lenda með sterkum þjóðum í riðli. Það væri ekki amalegt að fá að sjá t.d. ítalska, spænska eða gríska landsliðið etja keppi við okkar menn í höllinni.

Þær 30 þjóðir sem verða í næstu undanúrslitakeppni verða því: Þjóðir 2-16 í EM í Tyrklandi í haust, þjóðir 5 sem sátu eftir í 3.-4. sæti í síðustu undanúrslitakeppni (Belgía, Makedónía, England, Holland og Pólland), þjóðirnar 2 sem komust áfram úr síðustu forkeppni (Kýpur og Danmörk) og þær 8 þjóðir sem komast áfram úr undankeppninni í sumar (þar keppir Ísland í riðli með Finnlandi, Írlandi og Sviss og tvær efstu komast áfram). Fjórir slíkir riðlar verða í gangi í sumar.

Meira um Evrópukeppni landsliða og önnur mót á vegum FIBA í kistunni, þar sem nýjustu fréttatilkynninguna frá FIBA er að finna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og UMFN í úrslitakeppni íslandsmótsins í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1985. Miklar deilur urðu um lokakörfu leiksins. Hér eru Reynir Kristjánsson, Gunnar Þorvarðarson og Valur Ingimundarson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið