© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.3.2008 | 8:24 | FÍR
Sannkallað Körfuboltapartý um helgina
Það má með sanni segja að mikið körfuboltapartý verði um helgina en leikið verður í úrslitakeppnum Iceland Express deilda karla og kvenna sem og í úrslitum 1.deildar karla.

Partýið byrjar með nokkrum leikjum í kvöld og heldur svo áfram alla helgina. Hér að neðan má sjá leikjaniðurröðun helgarinnar:

Iceland Express deild karla:

Föstudagur 28.mars

Deildarmeistarar KeflavíkurÞór í heimsókn og hefst leikurinn klukkan 19:15

Grindavík og Skallagrímur mætast í Grindavík og hefst leikurinn klukkan 19:15

Laugardagur 29.mars

Í Njarðvík mætast Njarðvík og Snæfell í leik sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn hefst klukkan 16:00

Það verður sannkallaður Reykjavíkurslagur í DHL höllinni þegar KR og ÍR mætast klukkan 16:00

Iceland Express deild kvenna:

Sunnudagur 30.mars

Úrslitarimma Keflavíkur og KR um Íslandsmeistaratitil kvenna hefst í Keflavík klukkan 16:00


1.deild karla:

Föstudagur 28.mars

FSu og Valur mætast í úrslitum um eina lausa sætið í Iceland Express deildinni að ári og fer leikurinn fram á Selfossi og hefst klukkan 19:15

Sunnudagur 30.mars

Valur tekur á móti FSu í leik númer 2 í Vodafonehöllinni. Leikurinn hefst klukkan 19:15

2. deild karla:

Laugardagur 29. mars

Stjarnan B og Grindavík B mætast klukkan 16:30 í Ásgarði í undanúrslitum B-liða.

Sunnudagur 30. mars

Hrunamenn og ÍBV mætast á Flúðum klukkan 15:00 í undanúrslitum 2. deildar karla. Það lið sem sigrar í þessum leik mun tryggja sér sæti í 1. deild karla á tímabili.

Snæfell B og Valur B mætast í Stykkishólmi klukkan 16:00 í undanúrslitum 2. deildar karla.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni drengjalandsliðs Íslands í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í Tyrklandi árið 1993.  Snyrtipinnarnir Arnþór Birgisson og Bergur Emilsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið