S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
14.3.2008 | 23:03 | oddur
KR vann fyrsta leikinn og Keflavík deildarmeistari
Hildur Sigurðardóttir lék vel í kvöld (mynd: Jón Björn)
Hildur Sigurðardóttir lék vel fyrir KR gegn sínum gömlu félögum. Hún skoraði 28 stig og tók 13 fráköst í leiknum í kvöld og hjálpaði KR að vinna 68-81 sigur. Umfjöllun um leikinn á karfan.is. Keflavík sigraði Skallagrím í Borgarnesi 76-84 og tryggði sér þar með deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla og heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Bobby Walker skoraði 34 stig fyrir Keflavík í leiknum. Stjarnan sigraði Hamar í Hveragerði 70-82 og á því enn möguleika á því að komast í úrslitakeppnina. 5 leikir voru í 1. deild karla í kvöld. Breiðablik vann Hött á Egilsstöðum 79-98, KFÍ sigraði Þór Þorlákshöfn 91-92, Valur sigraði Reyni Sandgerði 77-89 og FSu lagði Hauka 81-104. Úrslit úr leik Þróttar Vogum og Ármanns hafa enn ekki borist. |