© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.3.2008 | 12:47 | oddur
Leikir kvöldsins
Keflavíkurstúlkur munu taka við öðrum bikarnum á tímabilinu í kvöld (JBÓ)
Í kvöld verða 2 leikir í Iceland Express deild karla og einn leikur í Iceland Express deild kvenna. Einnig verður leikið í 1. deild karla og kvenna.

Það verður stórleikur í Stykkishólmi í kvöld þegar Snæfell og Grindavík mætast. Grindavík er í þriðja sæti deildarinnar og eiga enn möguleika á því að hækka sig í töflunni. Snæfell er í fimmta sætinu og er að reyna að ná fjórða sætinu sem tryggir heimavallarréttindi í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Grindavík mun tefla fram nýjum leikmanni í kvöld, Jamaal Williams, og það verður fróðlegt að sjá hvernig Grindvíkingum mun ganga gegn bikarmeisturunum.

Á Akureyri mætast Þór Akureyri og Fjölnir. Þór er í mikilli baráttu við Tindastól og Stjörnuna um að komast í úrslitakeppnina en Fjölnismenn eru fastir á botni deildarinnar með Hamri. Það er þó ljóst að þeir geta unnið flest lið á góðum degi.

Í Iceland Express deild kvenna mætast Keflavík og Hamar. Keflavík hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og mun fá bikarinn afhentann í kvöld.

Í Smáranum í Kópavogi mætast Breiðablik og Þróttur Vogum í 1. deild karla. Breiðablik mun fá deildarmeistarbikarinn afhentann eftir leikinn í kvöld.

Þessir leikir hefjast allir klukkan 19:15.

Klukkan 20:00 mætast Valur og Höttur í 1. deild karla. Valsmenn eru að reyna að ná FSu í 2. sæti deildarinnar en Höttur er enn í töluverðri fallhættu.

Í 1. deild kvenna verða tveir leikir. Haukar B og Breiðablik klukkan 20:00 að Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikur Þórs Akureyri og Ármanns hefst svo klukkan 21:00 í Síðuskóla á Akureyri.



Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslensku stelpurnar búnar að koma sér vel fyrir áður en haldið er á æfingu í Sviss í ágústmánuði 2009. Ísland atti kappi við Sviss í B-deild Evrópukeppninnar laugardaginn 15. ágúst. Sviss vann nauman sigur 70-68 í hörkuleik.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið