© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.3.2008 | 10:44 | oddur
Þrír leikir í 1. deild karla í kvöld
Nemanja Sovic lék vel gegn Valsmönnum í fyrri leik liðanna (SÖA)
Í kvöld verða þrír leikir í 1. deild karla. Breiðablik getur tryggt sér sæti í Iceland Express deildinni á næsta ári með því að sigra Val í kvöld.

Blikar gátu tryggt sér sætið í síðasta leik en töpuðu á Selfossi fyrir FSu. Þeir hafa sex stiga forskot á Val og FSu og það eru 6 stig eftir í pottinum. Sigur í kvöld tryggir þeim því efsta sætið í 1. deild karla. Leikur Breiðabliks og Vals hefst klukkan 19:15 í kvöld í Smáranum.

Klukkan 18:30 verður leikur Hattar og FSu á Egilsstöðum. Þessi leikur er mikilvægur fyrir bæði lið en FSu þarf að sigra til að eiga möguleika á deildarmeistaratitlinum en Höttur er enn í fallbaráttu og þurfa að ná sér í stig til að tryggja að Reynir Sandgerði nái þeim ekki.

Ármann og Þór Þorlákshöfn mætast svo í Laugardalshöllinni klukkan 20:30 í kvöld. Þessi lið eru í mikilli baráttu um sæti í úrslitakeppninni og má því búast við hörkuleik.

Í gær var einn leikur í 1. deild karla þegar Reynir Sandgerði sigraði lið KFÍ 91-77.

Staðan í deildinni.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Albert Óskarsson og Guðmundur Bragason í leik gegn Möltu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið