S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
27.5.2001 | 18:31 | BL
Ólafur tilnefndur í undirbúningsnefnd að stofnun Evrópusambands FIBA
Á þinginu í dag var ákveðið að stefna að stofnun sérstaks Evrópusambands og var tilnefnd sérstök 11 manna undirbúningsnefnd af stofnun sambandsins. Ólafur Rafnsson formaður KKÍ var einn hinna 11 sem tilnefndur var í nefndina af hálfu þeirra þjóða sem stóðu að tillögunni, m.a. Grikklandi, Litháen o.fl. Stjórn FIBA lagði til að nefndin yrði einungis skipuð 7 aðilum, sem hefðu hinn formlega atkvæðisrétt. Þeir aðilar sem tilnefndir voru munu þó allir eiga að starfa með nefndinni, og verða skipaðir starfshópar um einstök svið, s.s. lögfræðimálefni, markaðsmál, stjórnskipulag, fjármál. Nefndinni er ætlað að skila tillögum fljótlega og í kjölfarið verður sérstakt Evrópusamband væntanlega stofnað. Ársþing FIBA 2002 í Belgíu mun þurfa að staðfesta tillögur nefndarinnar, og síðan þarf að leggja þær fyrir heimsþing FIBA sem verður haldið í Indianapolis í Bandaríkjunum sumarið 2002. Borislav Stankovic framkvæmdastjóri FIBA s.l. 25 ár, ætlar að halda áfram í embætti þrátt fyrir að hafa orðið undir á atkvæðagreiðslunni á föstudag. Samningur hans rennur út í desember á næsta ári. Framhaldsþing verður haldið í München í næsta mánuði þar sem ný stjórn verður kjörin, en einar 10 stöður í stjórninni munu vera lausar eftir uppnámið á föstudag. |