© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.2.2008 | 21:46 | OOJ
Sjötti Íslendingurinn til að skora 30 stig í bikarúrslitaleik
Sigurður Þorvaldsson í leik gegn UMFN í haust. (Mynd: Jón Björn)
Snæfellingurinn Sigurður Þorvaldsson skoraði 30 stig í 109-86 sigri Snæfells á Fjölni í bikarúrslitaleik Lýsingarbikars karla í dag og varð þar með aðeins sjötti Íslendingurinn í 39 ára sögu bikarúrslitaleiksins til þess að brjóta 30 stiga múrinn.

Sigurður var ennfremur fyrsti íslenski leikmaðurinn í 14 ár sem nær að skora 30 stig í bikaúrslitaleik en síðastur til þess á undan honum var Njarðvíkingurinn Teitur Örlygsson sem náði því í tapleik árið 1994. Sigurði vantaði hinsvegar enn fimmtán stig upp á að jafna stigamet Vals Ingimundarsonar sem skoraði 45 stig í úrslitaleiknum fyrir tuttugu árum síðan.

Flest stig Íslendings í bikarúrslitaleik karla:
45 - Valur Ingimundarson, Njarðvík (gegn KR 1988, sigur)
38 - Teitur Örlygsson, Njarðvík (gegn Keflavík 1994, tap)
37 - Guðni Guðnason, KR (gegn Njarðvík 1988, tap)
31 - Kolbeinn Pálsson, KR (gegn ÍR 1972, sigur)
30 - Jón Sigurðsson, Ármanni (gegn Njarðvík 1976, sigur)
30 - Sigurður Þorvaldsson, Snæfelli (gegn Fjölni 2008, sigur)

Skipting stiga Sigurðar Þorvaldssonar í úrslitaleiknum 2008:
Í 1. leikhuta 11
Í 2. leikhuta 3
Í 3. leikhuta 14
Í 4. leikhuta 2
Í fyrri hálfleik 14
Í seinni hálfleik 16
--------------------
Stig úr teig 6
Stig utan teigs 0
Stig úr þriggja stiga skotum 21
Stig af vítalínunni 1
Stig úr hraðaupphlaupum 2
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Unglingalandslið kvenna U-18 sigraði með yfirburðum á Promotion cup FIBA Europe sem haldið var á Ásvöllum í Hafnarfirði í ágúst 2003. Stúlkurnar í þessu móti voru fæddar 1985 og síðar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið