© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.5.2001 | 15:52 | BL
ULEB samningurinn felldur
Stjórn FIBA situr nú á neyðarfundi til að ákveða hver næstu skref verði eftir að ljóst var í atkvæðagreiðslu núna rétt áðan að tillaga stjórnarinnar um að samþykkja samninginn við EULEB, var felld.

Atkvæðagreiðslan fór á þá leið að samningurinn var felldur með 29 atkvæðum gegn 18, 2 atkvæði voru auð eða ógild.

Ekki er ljóst á þessari stundu hvert framhaldið verður, en stjórnin hafði hótað að segja af sér yrði samningurinn ekki samþykktur. Hvort svo verður kemur í ljós á næstu mínútum eða klukkustundum. kki.is mun flytja fréttir af þinginu eftir því sem færi gefst.

Í stuttu máli má segja að samningur FIBA við ULEB snúist um skiptingu tekna af sjónvarpssamningi vegna meistaradeildar Evrópu. Nokkur stór félög stofnuðu sína eigin deild, EuroLeague, í vetur í kjölfar þess að þau töldu sig ekki fá nógu mikið að sjónvarpstekjunum í sinn hlut. FIBA fór af stað með SuproLeague, en ljóst er að ekki er hentugt að hafa tvær slíkar deildir í gangi. Því fór af stað samningaviðræður milli FIBA og ULEB þar sem lyktir urðu þær að FIBA gaf eftir á öllum sviðum og ULEB-liðin náðu öllum sínum kröfum fram.

Þessi samningur hefur nú verið felldur á þinginu og fróðlegt verður að fylgjast með framvindu mála. Eftir því sem kki.is kemst næst takast á sjónarmið stórra félaganna í Evrópu og hinna minni. Stóru félögin vilja fá allar tekjur af deildinni í sinn hlut, en ekki deila neinu fé út til þeirra minni. Fulltrúar þessara sjónarmiða eru greinilega í minnihluta á þinginu í Bad Kreuznach.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá körfuboltahátíð KKÍ í Perlunni árið 1993.  Magnús Matthíasson, Henning Henningsson og Björn Leósson í kynningarbási A-landsliðs karla.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið