S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
24.5.2001 | 12:51 | BL
Brenton Birmingham kominn með íslenskan ríkisborgararétt
![]() Þar með er ljóst að Brenton mun leika sem Íslendingur hjá UMFN næsta vetur og því getur félagið fengið sér „annan“ Bandaríkjamann. Ekki er vitað annað en Brenton muni áfram verða í herbúðum Íslandsmeistaranna. Á næstu dögum mun Brenton síðan sækja formlega um nýtt körfuknattleiks ríkisfang til FIBA, en þriggja ára biðtími er eftir því. Að þeim þremur árum liðnum mun Brenton verða gjaldgengur með íslenska landsliðinu, en þá verður hann 31 árs gamall. Þrír leikmenn af erlendu bergi brotnir hafa leikið með íslenska landsliðinu til þessa, en það eru þeir Ívar Webster, Jónatan Bow og Alexander Ermolinskij. |