S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
14.2.2008 | 15:01 | oddur
4 leikir í Iceland Express deild karla í kvöld
Í Borgarnesi verður stórleikur þegar Skallagrímur tekur á móti Grindavík. Skallagrímur er í 4. sæti deildarinnar með 20 stig en Grindavík í því þriðja með 24 stig. Grindvíkingar unnu fyrri viðureign liðanna 90-74. Í Garðabænum mætast Stjarnan og Njarðvík. Þessi lið eru að berjast á sitt hvorum enda töflunnar, Stjarnan er í fallbaráttu á meðan Njarðvíkingar vonast til að komast nær toppliðum deildarinnar. Stjörnumenn fóru með sigur af hólmi í fyrri viðureign liðanna í Njarðvík 78-81. Á Sauðárkróki mætast Tindastóll og Snæfell. Tindastóll er 4 stigum á eftir Snæfelli í deildinni en Snæfell vann síðasta leik liðanna nokkuð auðveldlega 101-73. Í Hveragerði má búast við miklum baráttuleik þegar Hamar tekur á móti Þór frá Akureyri. Hamar er í neðsta sæti deildarinnar með 6 stig en Þór er í 7.-9. sæti með 12 stig. Það má því búast við að bæði lið leggi allt í sölurnar til að bæta stöðu sína í deildinni. Þórsarar höfðu betur í fyrri leik liðanna í vetur 92-74. Staðan í deildinni. |