S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
19.1.2008 | 20:25 | SÖA
Góðum Stjörnudegi lokið
Ólafur treður knettinum í körfuna (mynd: Snorri Örn)
Fyrri leikurinn var á milli kvennalandsliðsins og úrvalsliðs Iceland Express. Iceland Express liðið hafði frumkvæðið í leiknum og landaði sigri með 100 stigum gegn 78. Monique Martin var stigahæst hjá Iceland Express liðinu en Signý Hermannsdóttir skoraði mest fyrir landsliðið. Karlaleikurinn á milli landsliðsins og Iceland Express liðsins fór fjörlega af stað með glæsilegum troðslum og þriggja stiga skotum. Landsliðið leiddi mestan hluta leiksins en úrvalsliðið náði að komast yfir á lokamínútunum sem voru æsispennandi. Iceland Express liðið komst yfir 135-136 þegar lítið var eftir af leiknum. Landsliðið náði þó boltanum þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum og rauk fram í hraðaupphlaup þar sem brotið var á Hlyn Bæringssyni þegar lokaflautan gjall. Hlynur fékk því tvö vítaskot og setti þau bæði örugglega ofan í. Íslenska landsliðið sigraði því 136-137. Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, gerði sér lítið fyrir og sigraði í troðslukeppninni. Ólafur fékk harða samkeppni frá mótherjum sínum og fengu áhorfendur í Keflavík að sjá mörg glæsileg tilþrif. Tilþrif Ólafs þóttu þó best og að launum hlaut hann sigurverðlaunin. |