S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
13.5.2001 | 15:28 | bl
Gísli Georgsson kjörinn í stjórn KKÍ
Gísli Georgsson fyrrverandi formaður körfuknattleiksdeildar KR var kjörinn í stjórn KKÍ á 41. ársþingi sambandsins sem haldið var á Ásvöllum í Hafnarfirði um helgina. Gísli kom inn í stjórnina í stað Ólafs Jóhannssonar sem hætti í stjórninni vegna brottflutnings til útlanda.
Þá voru þau Erla Sveinsdóttir, Jóhannes Karl Sveinsson og Hannes Jónsson endurkjörin í stjórnina til tveggja ára. Í varastjórn voru þeir Sturla Jónsson, Sigurður Skúli Bárðarson og Gísli Friðjónsson allir endurkjörnir. Einnig var kosið í hinar ýmsu nefndir og urðu litlar sem engar breytingar á nefndarskipaninni. Þá var kosið í nýjan körfuknattleiksdómstól í fyrsta sinn samkvæmt nýrri dómstólaskipan. Í dómstólinn voru kjörnir: Gísli Gíslason, Helgi Ingólfur Jónsson, Halldór Halldórsson, Bogi Hjálmtýsson og Jóhannes Karl Sveinsson. |