© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.5.2001 | 14:54 | BL
Reglur um erlenda leikmenn óbreyttar
41. ársþingi KKÍ á Ásvöllum í Hafnarfirði lauk fyrir nokkrum mínútum. Helsta álitamál þingsins, tillögur um breytingar á fjölda erlendra leikmanna hér á landi, var afgreitt á þann hátt að engar breytingar voru gerðar á núverandi reglum. Þá var tillaga um að fækka liðum í efstu deild karla einnig felld.

Af öðrum málum þingsins má nefna að ákveðið var að keppni í unglingaflokki karla og 1. flokki karla verði færð inn í 2. deildar keppnina.

Tillaga um nýtt dómstólakerfi fyrir KKÍ var samþykkt og einnig var samþykkt reglugerð um venslasamninga. Reglum aganefndar var breytt lítillega og í yngri flokkunum var samþykkt að leikið skuli í öllum riðlum í 4. umferð Íslandsmótsins. Einng var samþykkt að leyfa 8. flokks stúlkum að leika með meistaraflokkum félaga sinna. Þá var úrslitaleikjum 1. deildar karla fækkað í einn.

Þá var samþykkt að félag sem óskar eftir því að fá keppnisleyfi fyrir leikmann sem kemur frá örðum löndum en Evrópulöndum, skuli vera skuldlaust við KKÍ miðað við mánuðinn þar á undan, en áður var miðað við skuldastöðuna 1. júní. Reglum um sektarákvæði var einnig breytt lítillega.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Keflavík · Íslandsmeistarar í Unglingaflokki karla 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið