
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
1  | 
	||||||
2  | 
		3  | 
		4  | 
		5  | 
		6  | 
		7  | 
		8  | 
	
9  | 
		10  | 
		11  | 
		12  | 
		13  | 
		14  | 
		15  | 
	
16  | 
		17  | 
		18  | 
		19  | 
		20  | 
		21  | 
		22  | 
	
23  | 
		24  | 
		25  | 
		26  | 
		27  | 
		28  | 
		29  | 
	
30  | 
		
| 
 9.1.2008 | 14:21 | oddur 
  Stjörnuleikir KKÍ 
   
    Leikirnir verða með nokkuð breyttu sniði í ár og munum við kynna leikinn nánar á næstu dögum. Helstu breytingarnar eru eftirfarandi: Landsliðsþjálfararnir, Sigurður Ingimundarson hjá körlunum og Ágúst Björgvinsson hjá konunum, munu kalla saman 12 manna landsliðshóp sem mun leika gegn úrvalsliði íslenskra og erlendra leikmanna. Þjálfarar úrvalsliðanna munu velja 6 erlenda leikmenn og 6 íslenska leikmenn sem munu leika gegn landsliðunum. Ákveðið hefur verið að hvíla troðslu- og þriggjastigakeppnir í ár en varpa meira ljósi á landsliðin okkar og leikina sjálfa. Leikirnir munu fara fram laugardaginn 19. janúar eins og áður sagði og hefst kvennaleikurinn klukkan 13:30 og karlaleikurinn klukkan 15:30. Stefnt er að því að leikirnir verði sýndir beint á karfan.is.  |