© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.12.2007 | 21:11 | SÖA | Mótahald
Heimasigrar í Iceland Express deild karla í kvöld
Fjórir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld og höfðu heimaliðin betur í öllum tilfellum.

Í Njarðvík tóku heimamenn á móti Fjölni og höfðu 12 stiga sigur, 87-75. Sigurinn kom Njarðvíkingum upp í fjórða sæti deildarinnar, þar sem Skallagrímur tapaði sínum leik.

Topplið Keflavíkur tók á móti Skallagrím og höfðu sigur, 92-80

Í vesturbæ Reykjavíkur unnu KR-ingar 6 stiga sigur á Tindastól, 97-91. Þar með tylltu þeir sér í annað sæti Iceland Express deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan Grindavík, en Grindvíkingar eiga þó leik til góða.

ÍR-ingar unnu öruggan sigur á Snæfelli í Breiðholtinu, 102-77. ÍR er því komið upp að hlið Snæfells í 6.-8. sæti deildarinnar með 8 stig.

Annað kvöld fara tveir leikir fram í Iceland Express deild karla, þegar Grindvíkingar fara norður yfir heiðar og sækja Þór frá Akureyri heim og Stjarnan tekur á móti Hamar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Erlingur Snær Erlingsson dæmir villur á Snæfellinginn Jón Ólaf Jónsson í leik Njarðvíkur og Snæfells í átta liða úrslitum bikarkeppni KKÍ 22. janúar 2006.  Helgi Reynir Guðmundsson liggur á gólfinu og virðist ekkert skilja í ákvörðuninni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið