© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.12.2007 | 10:44 | FÍR
Spennandi leikir í Lýsingarbikarnum í dag
Mynd frá síðasta úrslitaleik á milli ÍR og Hamars
16-liða úrslitum í Lýsingarbikar lýkur í dag með nokkrum spennandi leikjum þar sem lið úr Iceland Express deild karla drógust saman.

Á Sauðárkróki mætast Tindastóll og Keflavík öðru sinni á rúmri viku. Keflavík sem er taplaust í IEX deildinni marði sigur gegn Tindastóli í síðasta leik og því má búast með hörkuleik í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:00

Í DHL höllinni mætast tvö af toppliðum IEX deildar karla KR og Grindavík. Þessi lið tóku þátt í miklum stigaleik í deildinni fyrr í vetur þegar Grindavík hafði betur 109:100 Leikurinn hefst klukkan 19:15

Í Garðabæ mætast Stjarnan og Njarðvík. Stjarnan vann Njarðvík í Njarðvík í leik liðanna í deildinni 78:81. Leikurinn hefst klukkan 19:15

Hamar og ÍR sem léku til úrslita í Lýsingarbikarnum í febrúar sl. mætast að þessu sinni í 16-liða úrslitunum og er eðlilega mikill spenningur fyrir leiknum sem hefst klukkan 19:15 í Hveragerði

Síðast en ekki síst má búast við hörkuleik tveggja liða úr 1.deild sem drógust saman í 16-liða úrslit en það er viðureign Þórs frá Þorlákshöfn og Hattar. Það er mikið í húfi fyrir þessi lið að komast í 8-liða úrslit Lýsingarbikarsins. Leikurinn fer fram í Þorlákshöfn og hefst klukkan 19:15
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið