© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.11.2007 | 14:46 | oddur
Tveir leikir í Iceland Express deild kvenna í kvöld
Í kvöld verða tveir leikir í Iceland Express deild kvenna. Einnig verða nokkrir leikir í 16-liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka.

Í Hveragerði mætast Hamar og KR. KR hefur leikið vel á tímabilinu og getur komist í annað sæti deildarinnar með sigri og hagstæðum úrslitum í leik Fjölnis og Hauka. Hamar hefur átt á brattann að sækja á fyrri hluta tímabilsins og eru í botnsætinu ásamt Fjölni og Val.

Fjölnir tekur á móti Haukum í Grafarvoginum. Haukar eru eins og er í öðru sæti deildarinnar með 6 sigra og 2 töp en Fjölnir hefur aðeins unnið einn leik.

Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

Þessa dagana stendur keppni í 16-liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka yfir. Í kvöld verða leiknir 3 leikir.

9. flokkur kvenna:
Hrunamenn - Valur klukkan 18:30 á Flúðum.

9. flokkur karla:
Breiðablik - Grindavík klukkan 18:30 í Smáranum.
Þór Þorlákshöfn - KR B klukkan 20:00 í Þorlákshöfn.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn A-landsliðs karla hlýða á þjóðsöng Íslands fyrir leik liðsins gegn Finnlandi 6. september 2006.  Frá vinstri: Magnús Þór Gunnarsson, Friðrik Stefánsson, Jakob Sigurðarson, Jón Nordal Hafsteinsson, Egill Jónasson, Jón Arnór Stefánsson, Páll Axel Vilbergsson, Brenton Birmingham, Fannar Ólafsson, Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson og Helgi Már Magnússon.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið