© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.11.2007 | 9:25 | oddur
Grindavík og Breiðablik sigruðu
Nemanja Sovic í leiknum í gær (mynd: Snorri Örn)
Í gærkvöldi fóru fram 2 leikir í Vodafone-Höll Vals. Heimamenn náðu ekki að landa sigri í þetta sinn.

Fyrri leikurinn var viðureign Vals og Grindavíkur í Iceland Express deild kvenna. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Valur leiddi með einu stigi í hálfleik.

Grindavík hóf síðari hálfleikinn svo af krafti og náði forystunni sem þær héldu það sem eftir lifði leiks. Lokatölur voru 56-66 fyrir Grindavík. Tiffany Roberson var með 20 stig og 18 fráköst fyrir Grindavík en Molly Peterman skoraði 26 stig fyrir Val.

Umjöllun um leikinn á vf.is. Með sigrinum komst Grindavík upp að hlið Hauka í 2. sæti Iceland Express deildarinnar.

Seinni leikurinn var á milli Vals og Breiðabliks í 1. deild karla. Breiðablik byrjaði leikinn vel og náði forystu í 1. leikhluta. Valmenn voru þó ekki langt undan og náðu að minnka muninn með góðri þriggja stiga körfu rétt áður en flautað var til hálfleiks.

Breiðablik hafði þó frumkvæðið áfram í seinni hálfleik og náðu Valsmenn ekki að vinna muninn upp. Breiðablik sigraði því 78-92 og er enn taplaust í 1. deild karla. Nemanja Sovic var heitur í leiknum og skoraði 31 stig fyrir Breiðablik. Hjá Val var Craig Walls stigahæstur með 17 stig.

Umfjöllun um leikinn á Breiðablik.is.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fjölnir · Íslandsmeistarar 11. flokks drengja 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið