© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.11.2007 | 13:12 | oddur
Einn leikur í Iceland Express deild karla í kvöld
Í kvöld verður einn leikur í Iceland Express deild karla þegar Njarðvík tekur á móti Tindastól klukkan 19:15 í Njarðvík.

Njarðvíkingar hafa unnið 4 leiki en tapað 3 í vetur. Þeir hafa ekki leikið vel í síðustu leikjum er eru eflaust staðráðnir í að bæta úr því í kvöld.

Tindastóll er með 3 sigra og 4 töp það sem af er vetrar. Þeir töpuðu naumlega fyrir Þór Akureyri í síðustu umferð og eru því einum sigurleik frá Njarðvíkingum í deildinni.

Staðan í Iceland Express deild karla.

Í kvöld verður einnig einn leikur í Lýsingarbikar karla þegar Fjölnir b og Keflavík b mætast í Grafarvoginum klukkan 20:00. Þessi leikur er liður í forkeppni að 32. liða úrslitum Lýsingarbikarsins.

Í kvöld verður einnig leikið í yngri flokkunum en FSu og Valur mætast í bikarkeppni 10. flokks karla klukkan 19:00 á Selfossi.

Einnig verður leikið í Unglingaflokki karla og Drengjaflokki ásamt 2. deild karla.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Hauka sem sigraði í 2. deildinni vorið 1981. Aftari röð frá vinstri: Rúnar Brynjólfsson formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, Höskuldur Björnsson, Ólafur Rafnsson, Kári Eiríksson, Kristján Arason, Eyþór Árnason, Þorteinn Aðalsteinsson, Sverrir Hjörleifsson, Birgir Örn Birgis þjálfari og Sigurbergur Steinsson stjórnarmaður. Fremri röð frá vinstri: Pálmar Sigurðsson, Sveinn Sigurbergsson, Hálfdan Markússon, Guðjón Þórðarson, Ingvar S. Jónsson og Einar Örn Birgisson sonur þjálfarans.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið