© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.5.2001 | 12:01 | phs
Öldungamót Vals 2001
Körfuknattleiksdeild Vals stendur fyrir öldungamóti í körfuknattleik sem hlotið hefur nafni "Gamlir og grófir".
Mótið verður haldið helgina 18. - 20. maí í íþróttahúsum Vals að Hlíðarenda.

Mótið verður haldið í Íþróttahúsum Vals að Hlíðarenda.
Keppt verður í lávarðadeild, 30 ára og eldri og kóngadeild, 40 ára og eldri. Leikmenn sem leikið hafa í vetur í Epson deild eða 1. deild eru ekki gjaldgengir í mótið.
Leikið verður í riðlum á föstudeginum 18. maí frá kl. 18.00 og laugardeginum 19. maí frá kl. 10.00. Á sunnudeginum 20. maí verður úrslitakeppni með þátttöku allra liða í mótinu. Að öðru leyti markast mótafyrirkomulag af fjölda þátttökuliða.
Hvert lið leikur a.m.k. fjóra leiki og þar af minnst einn leik á sunnudeginum.
Riðlakeppnin raðar liðum í úrslitakeppnina.
Sigurvegarar fá glæsilegan eignarbikar í verðlaun og auk þess verða verðlaunaveitingar í fljótandi formi að vanda.

Á sunnudeginum verða seldar léttar veitingar á vægu verði að Hlíðarenda.

Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 x 15 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í hvorum hálfleik. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum.

Þátttökugjald er kr. 10.000.- fyrir hvert lið.

Þátttökutilkynningar berist, fyrir 11. maí (90 ára afmæli VALS), til Torfa Magnússonar tm@simnet.is eða í síma 5512523 eða á skrifstofu Vals í síma 551 2187, fax 562 3734.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sigurður P. Gíslason (t.h.) og Pétur Rögnvaldsson (t.v.) voru aðalhvatamennirnir að baki stofnunar körfuknattleiksdeildar KR árið 1956 og léku með félaginu á gullaldarárum þess. Pétur, sem var fyrsti formaður deildarinnar (Sigurður var varaformaður), fluttist seinna til Hollywood og lék í kvikmyndinni
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið