
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
1  | 
	||||||
2  | 
		3  | 
		4  | 
		5  | 
		6  | 
		7  | 
		8  | 
	
9  | 
		10  | 
		11  | 
		12  | 
		13  | 
		14  | 
		15  | 
	
16  | 
		17  | 
		18  | 
		19  | 
		20  | 
		21  | 
		22  | 
	
23  | 
		24  | 
		25  | 
		26  | 
		27  | 
		28  | 
		29  | 
	
30  | 
		
| 
 18.10.2007 | 9:53 | oddur 
  2. umferð hefst í kvöld 
   
    Í fyrstu umferðinni voru margir skemmtilegir leikir og óvænt úrslit. Það vakti eftirtekt að nýliðarnir í deildinni unnu sína leiki gegn liðum sem voru í úrslitakeppninni í fyrra. Þessi lið fara því vel af stað en það verður áhugavert að fylgjast með gengi þeirra í vetur. Leikir kvöldsins: 19.15 Borgarnes Skallagrímur - Hamar 19.15 Grindavík Grindavík - KR 19.15 Síðuskóli Þór Ak. - UMFN 19.15 Seljaskóli ÍR - Tindastóll Það er erfitt að tala um toppbaráttu í deildinni eftir eina umferð en ef eitthvað er að marka spá fyrirliða, formanna og þjálfara þá verður sannkarlaður toppslagur í Grindavík þegar KR kemur í heimsókn. Tímabilið fer vel af stað og aðsókn á leiki var nokkuð góð í fyrstu umferðinni. Búast má við að vel verði mætt á leiki kvöldsins enda margar góðar viðureignir sem boðið er uppá.  |