© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.4.2001 | 11:03 | BL/PHS
Yfirlýsing vegna frétta af lyfjamálum
Í fréttum fjölmiðla hefur komið fram að þrír leikmenn í körfuknattleik hafi fallið á lyfjaprófi sem heilbrigðisráð ÍSÍ framkvæmir.

Tveir leikmenn Epson-deildarinnar hafa tekið inn efni sem inniheldur efedrín, en efedrín er á bannlista Alþjóða Ólympíuhreyfingarinnar. Efedrín er í vægasta flokki bannaðra efna og er refsing vegna þess allt frá áminningu til þriggja mánaða banns að hámarki. Efnið finnst m.a. í fæðubótarefnum sem hægt er að kaupa í Bandaríkjunum og af netinu.

Einn leikmaður í 1. deild kvenna er talinn hafa fallið á lyfjaprófi. Þar eru málavextir þeir að viðkomandi leikmaður, sem er astmasjúk og tekur inn astmalyf skv. læknisráði, áttaði sig ekki á að setja kross í viðkomandi reit á blaði þar sem spurt var hvort hún tæki lyf. Við lyfjapróf finnast svo astmalyf í sýni leikmannsins og telst hún því fallin á prófinu. Ef leikmaðurinn hefði merkt í viðkomandi reit að hún væri á lyfjum hefði hún ekki fallið á prófinu.

KKÍ lítur því svo á að viðkomandi leikmaður hafi augljóslega ekki gerst sek um lyfjamisnotkun heldur hafi henni orðið á einföld mistök við útfyllingu á pappírum við lyfjaprófið.

Stjórn KKÍ
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Stærstur hluti þeirra dómara sem hófu leik haustið 2006 ásamt Richard Stokes, yfirmanni dómaramála hjá FIBA Europe, og Snorra Erni Arnaldssyni, formanni dómaranefndar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið