© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.10.2007 | 0:13 | oddur
EM - Spánn og Rússland í úrslit
Maria Stepanova er hefur leikið vel fyrir Rússa.
Spánverjar og Rússar tryggðu sér sæti í úrslitum Evrópumeistaramóts kvenna sem fer fram á Ítalíu um þessar mundir.

Spánverjar unnu sigur á Hvíta Rússlandi 70-54 og Rússar gersigruðu Letta 67-36.

Spánverjar höfðu tapað í undanúrslitum Evrópukeppninnar þrisvar sinnum í röð en tókst loksins að tryggja sér sæti í úrslitunum eftir góðan sigur á Hvíta Rússlandi.

Rússland hefur hins vegar ekki átt í vandræðum með að komast í úrslitaleikinn en liðið hefur leikið í fleiri úrslitaleikjum í Evrópukeppninni en nokkur önnur þjóð.

Liðin mættust í riðlakeppninni og þar tókst Rússum að sigra. Það er ljóst að þarna munu mætast tvær stórþjóðir í Evrópskum körfubolta og það má því búast við góðum úrslitaleik.

Hægt er að fylgjast með gangi mála á heimasíðu FIBA Europe.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hann rífur í!   Bryndís Guðmundsdóttir passar að bikarinn sem U16 ára kvenna á Norðurlandamótinu í Svíþjóð árið 2004 skili sér til Íslands. Liðsfélagi hennar Helena Sverrisdóttir skutlar henni enda rífur bikarinn aðeins í.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið