© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.4.2001 | 19:22 | ooj
Selfoss, Grindavík, KR og Keflavík eignuðust Íslandsmeistara um helgina
Selfoss, Grindavík, KR og Keflavík eignuðust öll Íslandsmeistara þegar fjórir úrslitaleikir fóru fram í Austurbergi um helgina. Undanúrslitaleikirnir fóru fram á laugardaginn og úrslitaleikirnir í dag sunnudag. Selfoss varð Íslandsmeistari í 10. flokki karla eftir 63-60 sigur á Njarðvík, Grindavík varð Íslandsmeistari í 10. flokki kvenna eftir 60-21 sigur á Keflavík, KR varð Íslandsmeistari í drengjaflokki eftir 70-58 sigur á Val/Fjölni og Keflavík varð Íslandsmeistari í unglingaflokki kvenna eftir 62-52 sigur á ÍR/Breiðabliki. Það má finna tölfræði úrslitaleikjanna og úrslita allra leikjanna inn á nýjustu úrslit á KKÍ-síðunni eða að nýta sér tenglanna hér á undan með því að ýta á lokatölur leikjanna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið karla sem lék í C riðli Evrópukeppninnar í Sion í Sviss í apríl 1981. Aftari röð frá vinstri: Agnar Friðriksson fararstjóri, Kristinn Stefánsson aðstoðarþjálfari, Steinn Sveinsson fararstjóri, Torfi Magnússon Val, Símon Ólafsson Fram, Pétur Guðmundsson Val, Jónas Jóhannesson Njarðvík, Valur Ingimundarson Njarðvík, Gísli Gíslason ÍS og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson Njarðvík, Jón Sigurðsson KR, Kristinn Jörundsson ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val, Ágúst Líndal KR og Kristján Ágústsson Val.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið