© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.9.2007 | 22:44 | oddur
Snæfell í úrslit
Snæfell sigraði Njarðvík í seinni undanúrslitaleik Powerade bikarkeppninnar sem fram fór í Laugardalshöll í kvöld. Það verða því KR og Snæfell sem mætast í úrslitaleiknum á sunnudag.

Snæfell hafði frumkvæðið framan af og leiddu í hálfleik. Njarðvíkingar áttu góðan sprett í þriðja leikhluta og náðu að komast yfir. Leikurinn var í járnum um tíma en Snæfell náði svo góðri forystu í fjórða leikhluta.

Njarðvíkingar reyndu þá að tefla fram lágvöxnu liði og pressuðu Snæfell af miklum krafti. Þessi leikaðferð virkaði og Njarðvík komst aftur inn í leikinn.

Snæfell var þó sterkari á lokakaflanum og náði að halda auka muninn aftur og halda forystunni. Lokatölur leiksins urðu 79-85.

Justin Shouse var besti maður vallarins í kvöld. Hann stýrði leik Snæfells eins og herforingi, skoraði 24 stig hitti úr 9 af 12 skotum sínum utan af velli, tók 8 stig og sendi 7 stoðsendingar. Jón Ólafur Jónsson var næst stigahæstur hjá Snæfelli með 17 stig.

Brenton Birmingham var stigahæstur hjá Njarðvík með 24 stig og sendi 6 stoðsendingar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og UMFN í úrslitakeppni íslandsmótsins í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1985. Miklar deilur urðu um lokakörfu leiksins. Hér eru Reynir Kristjánsson, Gunnar Þorvarðarson og Valur Ingimundarson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið