© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.9.2007 | 12:22 | OOJ
Tveir sigrar í sjö leikjum gegn Írlandi
Hildur Sigurðardóttir hefur spilað flesta leiki við Írland í hópnum.
Íslenska kvennalandsliðið mætir Írlandi í dag í Dublin í lokaleik sínum í b-deild Evrópukeppninnar. Bæði lið eiga ekki möguleika á að komast áfram en sigurvegari leiksins tryggir sér þriðja sætið í riðlinum. Íslenska liðið vann fyrri leikinn í Keflavík síðasta haust með 12 stigum, 68-56. Það er annar tveggja sigra í sjö A-landsleikjum kvenna við Írland en hinn og sá eini í Dublin kom fyrir rúmum tíu árum eða 15. maí 1997.

Enginn leikmaður íslenska liðsins í dag var með þegar Ísland vann Írland í Dublin fyrir rúmum tíu árum en sjúkraþjálfari liðsins, Björg Hafsteinsson, var hinsvegar í treyju númer 10 í íslenska liðinu sem vann leikinn 72-61. Björg er ein af sex leikmönnum sem hafa spilað flesta landsleiki við Íra. Björg mætti Írum fimm sinnum á sínum landsliðsferli alveg eins og þær Guðbjörg Norðfjörð, Anna María Sveinsdóttir, Linda Stefánsdóttir, Hanna Björg Kjartansdóttir og Birna Valgarðsdóttir.

Stigahæsti leikmaður liðsins í þeim leik var Erla Reynisdóttir með 20 stig en leikurinn var einn þriggja vináttulandsleikja í undirbúningi liðsins fyrir Smáþjóðaleikana sem fóru fram á Íslandi 1997. Aðrar sem voru atkvæðamiklar í leiknum voru þær Birna Valgarðsdóttir (13 stig), Anna María Sveinsdóttir (12) og Anna Dís Sveinbjörnsdóttir (11). Þjálfari íslenska liðsins var Sigurður Ingimundarson.

Ísland vann heimaleikinn í fyrrahaust með tólf stiga mun, 68-56. Íslenska liðið hafði góð tök á leiknum og var komið með 16 stiga forskot eftir þrjá fyrstu leikhlutana. Helena Sverrisdóttir, sem flaug í leikinn frá Forth Worth í Texas, var þá atkvæðamest í íslenska liðinu með 20 stig, 13 fráköst og 7 stoðsendingar en fyrirliðinn, Signý Hermannsdóttir bætti við 12 stigum, 7 fráköstum, 4 stoðsendingum og 4 vörðum skotum. Sjö af tólf leikmönnum íslenska liðsins voru með í leiknum í fyrra.

Landsleikir Íslands við Írland hjá A-liði kvenna:
16. desember 1989 Promotion Cup í Lúxemborg 55-74 tap
14. desember 1993 Promotion Cup á Kýpur 48-66 tap
14. maí 1997 Vináttuleikur í Dublin 69-78 tap
15. maí 1997 Vináttuleikur í Dublin 72-61 sigur
16. maí 1997 Vináttuleikur í Waterford 74-79 tap
5. maí 2001 Æfingamót í Lúxemborg 61-72 tap
23. september 2006 Evrópukeppni, B-deild 68-56 sigur
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jónatan Bow og Patrick Releford kljást í leik Hauka og UMFN í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ 1989.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið