
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 13.9.2007 | 11:01 | oddur Evrópumótið - átta liða úrslit hefjast í dag	   Þjóðverjar sigruðu Ítalíu og komust áfram Litháar eru eina liðið sem ekki hefur tapað leik í keppninni. Þeir unnu í gær lið Slóveníu sem einnig var taplaust fyrir leikinn. Litháar náðu góðri forystu í seinni hálfleik og fóru með sigur af hólmi. Lokatölur leiksins voru 80-61. Ramunas Siskauskas var stigahæstur Litháa í leiknum með 21 stig. Þjóðverjar tryggðu sér sæti í 8 liða úrslitunum með því að sigra Ítali í hreinum úrslitaleik um 4. sætið í F-riðli. Ítalir lögðu mikla áherslu á að stoppa Dirk Nowitzki og héldu honum í 15 stigum en Johannes Herber kom mjög sterkur inn í þriðja leikhluta og skoraði 10 af 15 stigum sínum. Lokatölur leiksins urðu 67-58. Marco Belinelli var stigahæstur hjá Ítalíu með 25 stig. Boris Diaw átti góðan leik fyrir Frakkland gegn Tyrklandi í gær. Leikurinn breytti engu um stöðu liðanna í riðlunum og endaði með sigri Frakka 85-64. Í verða tveir leikir í átta liða úrslitunum. Rússar sem urðu í öðru sæti í E-riðli mæta Frökkum sem enduðu í þriðja sæti F-riðils. Sigurvegararnir úr E-riðlinum, Spánverjar, mæta svo Þjóðverjum sem voru í fjórða sæti F-riðilsins. |