S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
30.8.2007 | 16:35 | OOJ
Jakob kominn upp í 3. sætið í stoðsendingum
Jakob Örn í leiknum gegn Georgíu (mynd: Jón Björn)
Finninn Teemu Rannikko er efstur á listanum með 4,8 stoðsendingar að meðaltali og í 2. sætinu er Dzmitry Kuzmin frá Hvíta-Rússlandi sem hefur gefið einni stoðsendingu meira en Jakob. Jakob er ekki eini íslenski leikmaðurinn meðal efstu manna. Brenton Birmingham er í 4. sæti yfir flest stig skoruð í leik og í 6. sæti yfir bestu skotnýtinguna. Það hafa líka aðeins sex leikmenn spilað meira að meðaltali í keppninni heldur en Brenton og hann kemst einnig inn á topp tíu yfir flesta stolna bolta. Hlynur Bæringsson er í 4. sæti í fráköstum og í 5. sæti í sóknarfráköstum, Logi Gunnarsson er í 8. sæti yfir flestar stoðsendingar og þá hafa aðeins fjórir leikmenn fengið fleiri villur en Friðrik Stefánsson. Ísland leikur næst gegn Lúxemborg í Lúxemborg á laugardaginn og lokaleikur liðsins er síðan gegn Austurríksmönnum í Höllinni á miðvikudaginn kemur. Íslenskir leikmenn meðal efstu manna í tölfræðiþáttum b-deildar Evrópukeppninnar Stigaskor í leik Brenton Birmingham 4. sæti - 17,3 Logi Gunnarsson 21. sæti 12,3 Fráköst í leik Hlynur Bæringsson 4. sæti - 9,0 Brenton Birmingham 17. sæti - 5,7 Stoðsendingar í leik Jakob Örn Sigurðarson 3. sæti - 3,7 Logi Gunnarsson 8. sæti 2,7 Stolnir boltar í leik Brenton Birmingham 10. sæti - 1,8 Logi Gunnarsson 20. sæti 1,5 Mínútur í leik Brenton Birmingham 7. sæti - 32,8 Villur í leik Friðrik Stefánsson 5. sæti - 3,8 Fannar Ólafsson 15. sæti - 3,3 Hlynur Bæringsson 15. sæti - 3,3 3ja stiga körfur í leik Jakob Örn Sigurðarson 11. sæti - 2,0 Logi Gunnarsson 14. sæti 1,8 Brenton Birmingham 18. sæti - 1,7 Sóknarfráköst Hlynur Bæringsson 5. sæti - 2,8 Helgi Már Magnússon 16. sæti - 1,7 Páll Axel Vilbergsson 19. sæti - 1,5 Skotnýting Brenton Birmingham 6. sæti - 53,1% 3ja stiga skotnýting Brenton Birmingham 14. sæti - 41,7% Jakob Örn Sigurðarson 17. sæti - 40,0% Páll Axel Vilbergsson 17. sæti - 40,0% Vítanýting Brenton Birmingham 13. sæti - 72,2% |