© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.12.2015 | 13:57 | Kristinn
Davíð Tómas á FIBA dómaranámskeiði
Nú milli jóla og nýárs er Davíð Tómas Tómasson í Belgíu að dæma og taka þátt í námskeiði fyrir verðandi FIBA dómara.

FIBA er að breyta fyrirkomulaginu á ferlinu við að verða FIBA dómari og eru ekki lengur próf eins og verið hafa heldur þurfa menn að mæta á nokkur námskeið þar sem farið er yfir málin og dómarar dæma leiki. Aðildarlönd FIBA tilnefna svo FIBA dómara sína og fá þeir samþykki til tveggja ára í senn en FIBA mun jafnframt ákvarða hversu margar FIBA dómara hver þjóð getur átt.

FIBA sendi út bréf til allra aðildalanda í nóvember þar sem þjóðum var boðið að sækja um að senda efnilega dómara á námskeið á nokkrum stöðum og fékk Davíð Tómas inni á námskeiðið í Belgíu ásamt 17 öðrum. Námskeiðið er keyrt samhliða X-Mas Basket Tournament þar sem dómararnir dæma á.

KKÍ óskar Davíð Tómasi góðs gengis í verkefninu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Erlingur Hannesson, fararstjóri, og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari U18 kk, stigu villtan stríðsdans þegar strákarnir í átján ára liðinu tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í Solna í Svíþjóð í maí 2009. Strákarnir lögðu Finna í úrslitaleik og þeir félgar stóðust ekki mátið og tóku villt dansspor á parketinu í Solna við mikinn fögnuð viðstaddra.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið