S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
24.8.2007 | 15:31 | oddur
Sögulegur áfangi
Hannes Sigurbjörn Jónsson (mynd: Snorri Örn)
Það er ánægjuefni fyrir okkur körfuboltamenn sem og landsmenn alla að RÚV mun sýna alla heimaleiki landsliðanna, sem fram fara í lok ágúst og byrjun september. Karlaleikirnir fara fram miðvikudagana 29. ágúst og 5. september og verða þeir sýndir fljótlega eftir að þeim lýkur eða kl. 23:25. Leikur kvennaliðsins við Hollendinga verður sýndur beint frá Ásvöllum laugardaginn 1. september kl. 16:00. Eins og leikur karlalandsliðsins við Finnland er sá leikur ekkert merkilegri en hver annar landsleikur, nema ef vera kynni fyrir þá staðreynd að þetta verður í fyrsta sinn þar sem íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er sýnt beint í sjónvarpi. Fjöldi sjónvarpsútsendinga frá landsliðum okkar á einu hausti hefur aldrei verið meiri og er það í takt við þann aukna áhuga sem er á körfuboltanum hér landi. Ágúst og september eru tími A-landsleikjanna á vegum FIBA Europe og eini tíminn því fyrir okkur körfuboltaáhugamenn að sjá A-landslið karla og kvenna spila. Vissulega myndum við vilja hafa leikina dreifðari yfir árið og vonandi kemur sá tími að keppnisfyrirkomula g FIBA Europe breytist til batnaðar. Landsliðsmálefni KKÍ hafa verið í brennidepli í sumar. KKÍ þurfti að draga úr landsliðsstarfi sínu þar sem fjármagn sambandsins var af skornum skammti . Það er því gleðiefni að segja frá því að verið er að ganga frá samningi við nýjan samstarfsaðila KKÍ sem koma mun að landsliðsstarfi sambandsins og verður sá samingur kynntur í byrjun næstu viku. Það eru því bjartir tímar framundan í íslenskum körfuknattleik. Ég hvet alla landsmenn að stilla á RÚV á morgun, laugardag, kl. 15:00 og sjá skemmtilegan landsleik í körfubolta, í fyrsta sinn beint frá útlöndum. Hannes S.Jónsson Formaður KKÍ |