© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.7.2007 | 14:19 | oddur
Árni Ragnarsson MVP í körfuboltabúðum í Bandaríkjunum
Árni með Ronnie Stabler, aðalþjálfara búðanna.(mynd: www.colonadecamps.com)
Árni Ragnarsson leikmaður Fjölnis tók á dögunum þátt í körfuboltabúðum í Alabama í Bandaríkjunum en búðirnar heita Colonnade Camps og var þetta í 17. skipti sem búðirnar eru haldnar. Árni fór á kostum þar og var að lokum valinn MVP(Mikilvægasti leikmaður) stjörnuleiks mótsins.

Árni sem lengi hefur haft hug á að komast í skóla í Bandaríkjunum hefur verið í sambandi við þjálfara þar ytra og allir hafa viljað sjá hann spila. Hann fór því í þessar búðir þar sem boðið er efnilegustu leikmönnum í High school í Alabama og fylkjum í kring og voru þarna um 120 strákar.

Aðalþjálfari búðanna er Ronnie Stabler sem hefur verið High school þjálfari í 39 ár og með honum voru 15 aðstoðarmenn sem allir eru að þjálfa High school lið. Auk þess voru um 70 njósnarar úr bandarískum háskólum á svæðinu. Eins og fyrr segir fór Árni á kostum í stjörnuleik mótsins og tróð m.a. með tilþrifum í miðri sókn.

Einnig stóð hann sig vel í leik Úrvalsliðs búðanna og Alabama Challenge sem er lið sem samanstendur af High school leikmönnum sem komnir eru með samning við lið í NCAA I deildinni, t.d. North Carolina. Þá var Árni í sigurliði 3 á 3 keppni mótsins sem og 5 á 5 keppninni.

Að búðunum loknum voru nokkrir skólar sem buðu Árna fullan skólastyrk en hann ætlar að hugsa málið þar sem hann hefur ákveðna skóla í huga.

(Frétt tekin af karfan.is)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Ársþingi KKÍ á Flúðum 1994
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið