© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.7.2007 | 10:57 | oddur
Serbar Evrópumeistarar U-20
Lið Serba fagnar titlinum
Serbar urðu í gærkvöldi Evrópumeistarar U-20 ára landsliða karla þegar þeir unnu Spánverja í úrslitaleik 87-78.

Þetta er í fyrsta sinn sem liði tekst að verja U-20 ára Evrópumeistaratitil en það tókst Serbum með sigrinum í gærkvöldi. Lið Serba hefur verið mjög sigursælt síðustu árin í Evrópukeppnum en kjarninn úr þessu liði varð Evrópumeistari U-16 ára 2003, U-18 2005 og U-20 2006.

Leikstjórnandi Serba, Milos Teodosic, skoraði 22 stig og sendi 5 stoðsendingar í úrslitaleiknum og fyrirliði liðsins, Milenko Tepic skoraði 20 stig. Teodosic var einnig valinn mikilvægasti leikmaður mótsins en hann var með 15,4 stig, 5,4 stoðsendingar og 2,4 fráköst að meðaltali í 8 leikjum á Evrópumótinu.

Spánverjar byrjuðu úrslitaleikinn betur og komust í 6-0 eftir að Teodosic varð að setjast á bekkinn með 2 villur sem hann fékk í byrjun leiksins. Serbar léku þó góðan varnarleik í leikhlutanum og voru aðeins tveimur stigum undir að honum loknum. Liðin skiptust svo á forystunni í öðrum leikhluta en Serbar enduðu annan leikhlutann af krafti og leiddu í hálfleik 39-33.

Spánverjar byrjuðu þriðja leikhlutann betur og minnkuðu muninn í 2 stig. Serbar náðu þó aftur að auka forystuna og leiddu með 5 stigum í byrjun fjórða leikhluta. Þeir náðu svo að auka forstuna upp í 10 stig í fjórða leikhluta og Spánverjar náðu ekki að vinna upp muninn.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Heimir Karlsson og Einar Bollason taka viðtal við Michael Jordan í búningsklefa Chicago Bulls liðsins árið 1988.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið