© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.6.2007 | 10:49 | oddur
Nýliðaval NBA í kvöld
Verður Greg Oden valinn númer eitt?
Nýliðaval NBA deildarinnar verður haldið í kvöld í New York. Þessi atburður vekur mikla eftirtekt enda getur verið mjög áhugavert að sjá hvað framkvæmdastjórar NBA liðanna ákveða að gera.

Körfuboltasérfræðingar vestanhafs telja nokkuð öruggt að Greg Oden verði valinn fyrstur af Portland Trailblazers og að Kevin Durant verði valinn númer tvö af Seattle Supersonics. Eftir það er erfiðara að spá í hvaða röð leikmenn verða valdir en miklar vangaveltur eru um það hvort liðin skipti valréttum sínum fyrir leikmenn eða aðra valrétti.

Hægt er að lesa mikið um komandi nýliðaval á netinu. Þar má meðal annars finna þessa spá um nýliðavalið á NBA síðunni. Einnig er hægt að lesa skemmtilegan pistil þar sem Bill Simmons skrifar um hvað NBA liðin ættu að gera í tengslum við valið.

Sérfræðingar ESPN velja fyrir liðin.

Hægt er að sjá myndbrot af þeim leikmönnum sem talið er að verði valdir snemma í valinu.

Nýliðavalið hefst klukkan 23:00 að íslenskum tíma í kvöld.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lárus Dagur Pálsson fyrirliði Tindastóls tekur við Eggjabikarnum af Jóni Pétri Líndal frá Félagi eggjaframleiðanda en Tindastóll sigraði í keppninni árið 1999. Ólafur Rafnsson formaður KKÍ er á milli þeirra en í baksýn eru, frá vinstri, Ísak Einarsson, Helgi F. Margeirsson og Shawn Myers.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið