© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.6.2007 | 16:36 | oddur
Undirbúningur hafinn hjá A-landsliði kvenna
Guðjón Skúlason, þjálfari A-landsliðs kvenna.
Undirbúningur fyrir Evrópukeppni landsliða er hafinn hjá A-landsliði kvenna. Guðjón Skúlason, landsliðsþjálfari, kallaði saman æfinghóp sem æfði í gær í Reykjanesbæ og mun æfa á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld og á morgun.

Stefnt er að því að liðið komi svo aftur saman um miðjan júlí og taki góða æfingatörn. Liðið mun svo æfa mjög stíft frá 7. ágúst.

Fyrsti leikur liðsins verður laugardaginn 1. september gegn Hollandi. Leikurinn verður á Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst klukkan 16:00. Þessi leikur er gífurlega mikilvægur fyrir íslenska liðið. Ef að sigur vinnst í honum þá eigum við góða möguleika á því að komast áfram í keppninni. Ísland tapaði naumlega fyrir Hollandi í fyrri umferðinni síðasta haust 66-61. Með góðum stuðningi áhorfenda ætti liðið því að eiga góðan möguleika á því að komast áfram í keppninni.

Leikurinn gegn Hollandi verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Íslenska liðið leikur svo viku seinna, 8. september, gegn Noregi og 15. september mæta þær Írum. Báðir þessir leikir munu fara fram á útivelli. Ísland sigraði Íra síðastliðið haust en tapaði fyrir Norðmönnum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lárus Dagur Pálsson fyrirliði Tindastóls tekur við Eggjabikarnum af Jóni Pétri Líndal frá Félagi eggjaframleiðanda en Tindastóll sigraði í keppninni árið 1999. Ólafur Rafnsson formaður KKÍ er á milli þeirra en í baksýn eru, frá vinstri, Ísak Einarsson, Helgi F. Margeirsson og Shawn Myers.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið