© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.6.2007 | 8:11 | oddur
KR-ingar fá parket
Í dag hefst vinna við að rífa dúkinn af DHL-Höll KR-inga. Skipta á um gólfefni í húsinu og munu KR-ingar fá parket fyrir næsta tímabil.

Parketgólf eru mun hentugri til körfuknattleiksiðkunar en önnur gólfefni. Meiðslatíðni á parketi er mun lægri en á dúk. Á ársþingi KKÍ, sem haldið var á Flúðum í byrjun maí, var samþykkt að allir leikir í efstu deildum karla og kvenna yrðu að vera leiknir á parketgólfi frá og með keppnistímabilinu 2010-2011.

KR-ingar eru að sjálfsögðu hæstánægðir með að fá loksins parket í DHL-Höllina en einnig stendur til að bæta við áhorfendapöllum í húsinu svo að miklar framkvæmdir eru í vændum í vesturbænum. Á heimsíðu KR er sagt frá þessum framkvæmdum.

Einnig stendur til að skipta út gólfinu í Dalhúsum, heimavelli Fjölnismanna í Grafarvogi. Þar á að koma parket í staðinn fyrir dúkinn sem Fjölnir hefur leikið á síðustu ár. Liðunum fjölgar því sem geta boðið uppá toppaðstöðu fyrir körfuknattleiksiðkendur. Vonandi munu fleiri bætast í hópinn fljótlega.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ársþingi KKÍ á Flúðum 1994. Ólafur Rafnsson gjaldkeri KKÍ í pontu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið