© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.6.2007 | 10:10 | oddur
Montepaschi Siena ítalskir meistarar
Lið Montepaschi að fagna
Lið Montepaschi Siena varð ítalskur meistari í gær. Montepaschi sigraði lið VidiVici Bologna 3-0 í úrslitaeinvíginu.

Montepaschi var með besta árangurinn í ítölsku deildinni í vetur og var því með heimavallarréttindi í úrslitakeppninni. Í fyrstu umferð slógu þeir lið Tisettanta Cantù út 3-0, þeir sigruðu svo Lottomatica Roma, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, 3-1 áður en þeir komust í úrslitin.

Bologna lék betur í byrjun leiksins í gær og leiddu í hálfleik 51-40 en Montepaschi lék mun betur í seinni hálfleik, minnkuðu muninn og náðu svo forystunni í fjórða leikhluta. Þeir sýndu svo styrk sinn og náðu að sigra leikinn 90-82.

Terrell McIntyre skoraði 22 stig og Joseph Forte skoraði 21 stig fyrir Montepaschi í leiknum. Hjá Bologna var Andrea Crosariol stigahæstur með 21 stig.

Helstu tilþrif úrslitanna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þeir félagar Fannar Ólafsson og Sigurður Þorvaldssson þurftu smá klakaaðstoð á Smáþjóðaleikunum 2009 á Kýpur. Álagið getur verið mikið og því nauðsynlegt að setja smá ís á.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið