S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
15.6.2007 | 16:12 | oddur
Úrslit að ráðast í Evrópu
Kostas Tsartsaris og félagar í Panathinaikos eru með 2-1 forystu
Á Grikklandi mætast stórliðin Panathinaikos og Olympiacos. Þessi lið eru bæði sögufræg í Evrópskum körfubolta. Nýkrýndir Evrópudeildarmeistarar Panathinaikos náðu 2-1 forystu í einvíginu eftir að hafa sigrað Olympiacos 86-85 í æsispennandi, framlengdum leik. Panathinaikos þarf því aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér Gríska titilinn. Það verður þó ekki auðvelt fyrir þá að sigra á heimavelli Olympiacos. Montepaschi Siena og Virtus Bologna mætast í úrslitum ítölsku deildarinnar. Þar náði Montepaschi 1-0 forystu eftir að hafa unnið fyrsta leikinn 81-71. Það lið sem fyrr sigrar 3 leiki verður ítalskur meistari. Terrell McIntyre var stigahæstur hjá Montepaschi með 22 stig en 5 leikmenn liðsins skoruðu 10 stig eða meira í leiknum. |