© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.6.2007 | 4:05 | oddur
San Antonio Spurs NBA meistarar
Tony Parker lék frábærlega í úrslitunum (AP photo: Eric Gay)
San Antonio Spurs urðu í nótt NBA meistarar þegar þeir sigruðu Cleveland Cavaliers 83-82 í fjórða leik liðanna. San Antonio vann því einvígið 4-0.

Tony Parker var valinn leikmaður úrslitanna en hann skoraði tæplega 25 stig og var með 57% skotnýtingu í úrslitunum.

Þetta er fjórði NBA titillinn sem að San Antonio vinnur síðan árið 1999. Þeir unnu 58 leiki í deildarkeppninni, lögðu svo Denver, Phoenix og Utah á leiðinni í úrslitin þar sem að þeir fóru létt með Cleveland.

San Antonio var með frumkvæðið í leiknum í kvöld fyrir utan stuttan kafla í fjórða leikhluta þegar Cleveland náði 12-0 spretti. San Antonio náði þó að komast aftur yfir með frábærum körfum frá Manu Ginobili. Þeir náðu síðan nokkrum mikilvægum sóknarfráköstum og nýttu vítaskotin sín vel í lok leiksins.

Manu Ginobili var stigahæstur í kvöld með 27 stig, Tony Parker skoraði 24 stig og tók 7 fráköst og Tim Duncan skoraði 12 stig og tók 15 fráköst.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Frá setningarathöfn leikanna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið