© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.6.2007 | 4:05 | oddur
San Antonio með 3-0 forystu
Tony Parker hefur átt góða leiki í úrslitunum
San Antonio Spurs fóru langleiðina með að tryggja sér NBA titilinn í nótt þegar þeir sigruðu Cleveland Cavaliers í þriðja leik liðanna 75-72.

Leikurinn var jafn og spennandi, úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum þegar LeBron James hitti ekki úr erfiðu þriggja stiga skoti.

Tony Parker var stigahæstur í liði San Antonio með 17 stig og Tim Duncan skilaði sínu að vanda en hann var með 14 stig, 9 fráköst og 2 varin skot í leiknum. Hjá Cleveland var LeBron James með 25 stig 8 fráköst og 7 stoðsendingar og Zydrunas Ilgauskas skoraði 12 stig og tók 18 fráköst.

Leikurinn einkenndist af frábærum varnarleik beggja liða. Cleveland var mun nær því að sigra en það tókst ekki hjá þeim og eru þeir því í mjög erfiðri stöðu. Engu liði í sögu NBA hefur tekist að sigra í einvígi eftir að hafa lent 3-0 undir.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bragi Magnússon leikmaður Skallagríms er hér í sókn gegn Rodney Dobart, leikmanni Grindvíkur. Dobart leysti af Herman Meyers í janúar þetta ár sem varð fyrir meiðslum og lék með Grindavík til sigurs það árið.

Myndin er tekin í 8-liða úrslitunum þann 10. mars 1996 en leikurinn fór 62-76 og þar með vann Grindavík 2-0.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið