© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.6.2007 | 9:52 | oddur
Úrvalsbúðir stúlkna
Á myndinni má sjá stúlkur úr búðunum, fæddar 1994
Um helgina fóru fram úrvalsbúðir stúlkna sem fæddar eru 1994, 1995 og 1996 að Ásvöllum í Hafnarfirði. Vel tókst til með búðirnar og það var stór hópur af efnilegum stúlkum sem mættu og tóku þátt í æfingunum um helgina. Alls voru 98 stelpur sem mættu til æfinga.

Stúlkur fæddar 1994 voru 42 , 1995 voru 32 og stelpur fæddar 1996 24 og komu allstaðar af landinu. Stelpurnar komu frá suðurnesjarliðunum Grindavík, Njarðvík og Keflvík. Af höfuðborgarsvæðinu komu leikmenn frá Haukum, Breiðablik, KR, Ármanni/Þrótti, Fjölni. Mikið af stelpum komu frá landsbyggðar liðunum KFÍ, Herði Patreksfirði, Kormáki, Hrunamönnum og Sindra.

Stelpurnar unnu í hópum þar sem að lögð var árhersla á hluti eins og vörn, drippl, skot og sendingar. Ágúst Björgvinsson og Yngvi Gunnlaugsson voru umsjónarmenn æfingabúðanna en þeim til aðstoðar voru Rob Hodgson, Bjarni Gaukur Þórmundsson og Stefán Arnarson. Einnig voru lands- og unglingalandsliðs leikmennirnir Kristrún Sigurjónsdóttir, Margrét Kara Sturludóttir, Íris Sverrisdóttir og Kristín Fjóla Reynisdóttir.

Stelpurnar sem mættu á æfingabúðirnar fengu allar bol og drykk frá Powerade.

Seinni helmingur þessarra æfingabúða verður haldinn 25. og 26. ágúst í Smáranum í Kópavogi.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jakob Sigurðarson tekur hraustlega á því í tapleik gegn Finnum í Laugardalshöll 6. september 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið