
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 24.11.2015 | 13:30 | Kristinn Sigmundur dæmir í Euro Cup karla og EuroBaskeWomen2017   Í kvöld er það leikur heimamanna í Tartu University Rock og ETHA Engomi frá Kýpur en leikurinn er í L riðli FIBA Europe Cup karla. Eistarnir eru í baráttu um að komast upp úr riðlinum, hafa unnið 2 og tapað 2 eins og Juventus Utena frá Ítalíu. Kýpverska liðið situr hins vegar á botninum og hefur ekki unnið leik. Á morgun miðvikudag dæmir Sigmundur svo leik Eista og Hollendinga í undankeppni EuroBasket kvenna 2017. Í fyrstu umferðinni á laugardag unnu Hollendingar Króata en Eistar töpuðu fyrir Frökkum. Meðdómarar Sigmundar eru Andrei Sharapa frá Hvíta-Rússlandi og Marko Vladic frá Austurríki. Eftirlitsmaður er Klaus Metzger frá Þýskalandi. |