© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.11.2015 | 15:00 | Kristinn | Landslið
Berglind og Bergþóra voru ellefti og tólfti nýliðinn hans Ívars
Berglind Gunnarsdóttir, leikmaður Íslandsmeistara Snæfells og Valskonan Bergþóra Holton Tómasdóttir, léku báðar sinn fyrsta A-landsleik um helgina þegar Ísland mætti Ungverjalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2017.

Berglind er 22 ára og systir Gunnhildar Gunnarsdóttur sem hefur verið fastamaður í íslenska kvennalandsliðinu undanfarin ár. Bergþóra er 21 árs gömul og dóttir þeirra Tómasar Holton og Önnur Bjarkar Bjarnadóttur sem bæði spiluðu fyrir A-landsliðin á sínum ferli.

Berglind spilaði í tæpar 11 mínútur í leiknum en Bergþóra lék síðustu tvær mínútur leiksins. Hvorug þeirra náði að skora í sínum fyrsta A-landsleik en fá vonandi fleiri tækifæri til að bæta úr því.

Berglind og Bergþór urðu þarna ellefti og tólfti leikmaðurinn sem spila sinn fyrsta landsleik undir stjórn Ívars Ásgrímssonar en hann hafði áður gefið þremur öðrum leikmönnum sitt fyrsta tækifæri með A-landsliðinu á þessu ári.

Ívar hafði áður gefið þeim Auði Ólafsdóttur, Söndru Lind Þrastardóttur og Björgu Guðrúnu Einarsdóttur sinn fyrsta landsleik í ár. Auður spilaði sinn fyrsta landsleik á Smáþjóðaleikunum en þær Sandra Lind og Björg Guðrún voru nýliðar í æfingaferðinni til Danmerkur.

Við þetta bætist að þær Guðbjörg Sverrisdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir og spiluðu sinn fyrsta landsleik undir stjórn Ívars sumarið 2014.

Auk þeirra er í hópnum einn leikmaður sem spilaði sinn fyrsta landsleik undir stjórn Ívars Ásgrímssonar á fyrra tímabili hans með liðið en það er Bryndís Guðmundsdóttir.


Þjálfarar sem hafa gefið flestum leikmönnum fyrsta landsleikinn:
Torfi Magnússon 18
Ívar Ásgrímsson 12
Guttormur Ólafsson 11
Kolbrún Jónsdóttir 10
Sigurður Ingimundarson 10
Sigurður Hjörleifsson 8
Guðjón Skúlason 7
Ágúst Líndal 6
Hjörtur Harðarson 6
Ágúst Björgvinsson 5
Jón Örn Guðmundsson 5
Sverrir Þór Sverrisson 5

Nýliðar í íslenska kvennaalandsliðinu undanfarin landsliðsár:
2015 - 5
2014 - 2
2013 - 4
2012 - 1
2009 - 3
2008 - 5
2007 - 3
2006 - 4
2005 - 4
2004 - 1
2003 - 2
2002 - 5
2001 - 2
2000 - 5

Leikmenn sem hafa spilað fyrsta A-landsleikinn undir stjórn Ívars Ásgrímssonar:
María Ben Erlingsdóttir 28.5.2004 á móti Englandi
Ólöf Helga Pálsdóttir 28.5.2004 á móti Englandi
Petrúnella Skúladóttir 29.5.2004 á móti Englandi
Bryndís Guðmundsdóttir 28.12.2004 á móti Englandi
Kristrún Sigurjónsdóttir 20.5.2005 á móti Englandi
Marín Laufey Davíðsdóttir 9.7.2014 á móti Danmörku
Guðbjörg Sverrisdóttir 10.7.2014 á móti Danmörku
Auður Ólafsdóttir 2.6.2015 á móti Möltu
Sandra Lind Þrastardóttir 8.7.2015 á móti Danmörku
Björg Guðrún Einarsdóttir 8.7.2015 á móti Danmörku
Berglind Gunnarsdóttir 21.11.2015 á móti Ungverjalandi
Bergþóra Holton Tómasdóttir 21.11.2015 á móti Ungverjalandi
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og ÍR í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1983.  Kolbeinn Kristinsson sækir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið